13 desember 2005
28 febrúar 2005
Breytið Bookmarkinu ykkar
http://Krummi.klaki.net
|
24 febrúar 2005
14 febrúar 2005
Skemmtilegur Nördaskapur
Ef þú ert góð(ur) í þessu hefurðu séð allt of mikið af bíómyndum.
45 komnar, 27 eftir.
|
10 febrúar 2005
Molar
Ekki nógu mikið í gangi til að verðskulda margar heilar samstæðar málsgreinar þannig að færsla þessi verður molaskipt.
* Tæpar 8 vikur í epíska útför. Undirbúningur enganvegin nógu góður, en það er bara stuð.
* Allt of há prósenta af tekjum mínum fer í áfengiskaup.
* Ég hef með hjálp Jóhanns Alfreðs komist að þeirri niðurstöðu að Hexia De Trix er langsamlega kynþokkafyllst af Andrésblaðagellunum.
* Faðir minn fær dónaverðlaunin þessa vikuna fyrir afar ósmekklega og myndrænan lýsingu sína á eigin kenningu um BDSM samband Condoleezu Rice, nýskipaðs utanríkisráðherra BNA og George W. Bush. Mjög rangt á mjög marga vegu.
* Er búinn að sjá 4 af 5 tilnefndum myndum í flokknum Besta Myndin. Aðeins Ray eftir. Sideways stendur upp úr.
* Hef annars séð mikið af öðrum góðum myndum síðustu misseri, eins og Ghost in the Shell 2: Innocence, Donnie Darko: Directors Cut, Team America: World Police, Casshern og einhverjar fleiri.
* Hef verið að kynna mér sögu Lúsifers upp á síkastið. Mjög áhugavert dót. Finnst merkilegast að það er hvergi minnst á fall Lúsifers eða neitt slíkt í Biblíunni heldur er þetta algjörlega ótengd kristin mýtólógía. Samt mikilvæg dæmisaga um spillingu valds og myrkrið sem býr í öllum. Er farið að þyrsta í að tækla Milton.
* Ætli Adam hafi ekki einfaldlega bitið í eplið til að losna við leiðindi hins fullkomna? Ég held að Paradís sé döll staður.
* Hrósið fá Zab Judah og Monte Barrett fyrir að gefa skít í væntingar fólks og komast á toppinn.
* Veit einhver um góðan stað á netinu til að hýsa ljósmyndir?
* Er að spá í að vera að gera þetta blogg upp. Orðið dáldið þreytt.
* Ég krefst þess að bloggarar sem ég les daglega bloggi daglega.
Fleira var það ekki í bili.
|
Póstmaðurinn
Ég á víst einhverja Gmail adressu sem ég hef ekki haft rænu á að nota almennilega. Hotmail er drasl Þannig að vinsamlegast beinið öllum fyrirspurnum, heillakveðjum eða hótunum á krummo@gmail.com
Takk fyrir.
|
08 febrúar 2005
Heimurinn Einfaldaður
"See, there's three kinds of people: dicks, pussies, and assholes. Pussies think everyone can get along, and dicks just want to fuck all the time without thinking it through. But then you got your assholes, Chuck. And all the assholes want us to shit all over everything! So, pussies may get mad at dicks once in a while because pussies get fucked by dicks. But dicks also fuck assholes, Chuck. And if they didn't fuck the assholes, you know what you'd get? You'd get your dick and your pussy all covered in shit!"
|

