30 nóvember 2004

Lágfleygur

Ég var afar háfeygur og menningarlegur í gær sökum mikillar listaspýruhegðunar. Það er runnið af mér þannig að þessi færsla verður fremur getulaus...

Búinn að bomba í gegn eins og tveimur ritgerðum, einhverjum smærri verkefnum og eins og einu Listasögu lokaprófi. Ennþá sitthvað mallandi á könnuni þó.

Missti af Dimmisjón, er nákvæmlega sama. Frétti þó að mínir menn hefðu skemmt lýðnum með ölæði og vitleysu. Á meðan reddaði ég þýskunámi mínu fimlega.

London - Finnland - Tæland - Sex Mánuðir - Finnland - London
$1000? Ekki slæmur díll held ég.

Marco Antonio Barrera skemmdi allt hjá mér í Nóvember með því að heimskast til að vinna Erik Morales, og með því eyðileggja drauma mína um 100% nýtingu þann mánuðinn. 6 af 7 réttir er svosem ekki alslæmt.

Heldurðu virkilega að þú sért vinur minn? Taktu þá Kvizzið og sannaðu það! Nokkrar laufléttar spurningar sem ættu ekki að vefjast fyrir neinum sem þekkja mig.

Mæli með: Að droppa út úr menntaskóla...eða bara að sleppa því að fara í slíkt fyrirbæri!

|